Íslenskur ís og svart eldfjallagler

STEFNA · FÓLK · GÖGN

Allir eru að tala um gervigreind,
en hvað þýðir hún fyrir ykkar starfsemi?

Hvort sem þið eruð rétt að byrja, að meta Microsoft 365 Copilot eða þegar komin af stað, get ég aðstoðað ykkur að finna hvar gervigreind getur skapað raunverulegt virði og hvað þarf til að ná því fram.

Það er margt sem þarf að ákveða þegar gervigreind er innleidd inn í starfsemina.

Hvar eigum við að byrja?

Hvaða starfsfólk á að fá leyfi fyrst?

Hvaða notkunartilvik skipta mestu máli fyrir okkar starfsemi?

Hvernig mælum við ávinning?

Hvernig höldum við utan um agents, gögn, öryggi og ábyrgð þegar notkunin eykst?

Þið þurfið ekki að hafa öll svörin. Við byrjum á því að meta hvar þið eruð stödd í dag, forgangsröðum því sem skiptir mestu máli og ákveðum hvað kemur næst.

Borgar þetta sig?

Ef Microsoft 365 Copilot er hluti af myndinni hjá ykkur getum við byrjað á að setja tölur á mögulegan ávinning.

Stillið forsendurnar og sjáið hvað Microsoft 365 Copilot gæti þýtt fyrir ykkur.

25
1.100.000 kr.

Stuðningur við innleiðingu

Um forsendurnar

Reiknivélin sýnir áætlaðan ávinning út frá þeim forsendum sem þú velur og er ekki loforð um niðurstöðu. Í Microsoft Work Trend Index rannsókn á notendum Microsoft 365 Copilot greindu notendur að meðaltali frá um 14 mínútna tímasparnaði á dag. Raunverulegur ávinningur getur verið mismunandi eftir verkefnum, notkun, þjálfun og innleiðingu.

Forrester Consulting áætlaði jafnframt 132–353% arðsemi yfir þrjú ár fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Total Economic Impact™ rannsókn sem unnin var fyrir Microsoft.

SAMANLAGÐUR TÍMASPARNAÐUR

123 klst. á mánuði

Í þessari sviðsmynd er gert ráð fyrir að hver notandi spari að meðaltali um 14 mínútur á dag.

ÁRSLEGUR TÍMASPARNAÐUR

185 vinnudagar

Samanlagður tími sem hægt væri að færa úr endurteknum verkefnum yfir í vinnu sem skapar meira virði.

ÁÆTLAÐ FJÁRHAGSLEGT VIRÐI

LEYFISKOSTNAÐUR Á MÁNUÐI

137.250 kr.

ÁÆTLAÐ VIRÐI TÍMASPARNAÐAR Á MÁNUÐI

842.188 kr.

ÁÆTLAÐUR NETTÓÁVINNINGUR Á MÁNUÐI

704.938 kr.

ÁÆTLAÐUR ÁRSÁVINNINGUR

8.459.256 kr.

Miðað við þessar forsendur þarf hver notandi að spara um 2,3 mín. á dag til að leyfiskostnaðurinn borgi sig.

514% ROI

Engin tvö fyrirtæki byrja á sama stað.

Skoðum hvar þið eruð stödd, hvað þið viljið fá út úr gervigreind og hvernig best er að komast áfram þaðan.

MÓTUM VEGINN SAMAN

Byrjum á samtali.

Helst hittumst við í eigin persónu. Ég vil skilja hvar þið eruð stödd, hvert þið viljið komast og hvað stendur í vegi fyrir því í dag.

Ég tek ekki að mér verkefni nema ég sjái að ég geti raunverulega skapað virði fyrir ykkur. Stundum felst það í sérfræðiþekkingu, stundum í öðru sjónarhorni og stundum einfaldlega í því að hjálpa ykkur að halda utan um ferlið og koma hlutunum áfram.

Ef okkur finnst samstarfið passa vel, förum við yfir þarfirnar, forgangsröðum og mótum næstu skref saman.

01

Hittumst og skoðum stöðuna

Við förum yfir markmiðin, áskoranirnar, tæknina, fólkið og það sem þegar hefur verið gert.

02

Finnum hvað skiptir máli

Stundum er svarið Microsoft 365 Copilot eða jafnvel önnur gervigreindarlausn. Stundum þarf fyrst að laga ferli, gögn eða nýta betur tólin sem þið eruð nú þegar með.

03

Mótum leiðina áfram

Ég legg til næstu skref út frá því hvað ég tel að skili mestu virði og hvernig ég get best stutt ykkur áfram. Það getur verið lítið afmarkað verkefni eða langtímasamstarf.

Fræðsla og vinnustofur

1:1 kennsla · námskeið · fyrirlestrar · vinnustofur · notkunartilvik

STÖÐUMAT OG ÁÆTLUN

þarfagreining · Microsoft 365 Copilot readiness · stöðumat á gögnum og gagnaöryggi · vegvísir · innleiðingaráætlun · mælikvarðar

Innleiðing og ráðgjöf

Stuðningur við innleiðingu · verkefnastýring · regluleg ráðgjöf · ráðgjöf samhliða innleiðingu hjá þriðja aðila · eftirfylgni

Stundum er gervigreind ekki lausnin. Stundum þarf betra ferli.

Ég mæli með því sem ég tel að skili ykkur mestu virði, hvort sem gervigreind er hluti af lausninni eða ekki.

Linda Dögg Guðmundsdóttir, stofnandi LEET

Ég kenni þetta ekki bara.
Ég vinn við þetta.

Síðustu ár hef ég unnið með fyrirtækjum að því að gera gervigreind og Microsoft 365 Copilot að hluta af stefnu og rekstri, frekar en að líta á þetta sem enn eitt tækniverkefnið. Það þýðir að horfa á markmiðin, fjárfestinguna, hlutverk stjórnenda, fólkið, gögnin, öryggið og hvernig árangurinn verður mældur.

Ég hef unnið að vegvísum, markmiðum og mælikvörðum, gagnaöryggi, Microsoft Purview, þjálfun, vinnustofum og innleiðingu. Sú reynsla gefur mér heildarmyndina og skilning á því hvað þarf að vinna saman svo fjárfestingin skili raunverulegu virði.

Microsoft MVP í Microsoft 365 Copilot og Microsoft Purview

11+ árí tækni og ráðgjöf

Heildarmyndinstefna, fólk, gögn og öryggi

Fyrirlesariá Íslandi og erlendis

European Collaboration SummitExpert Live DenmarkSKÝMicrosoft Security Insights Show